Tor Arne Berg mun taka við stöðu forstjóra Alcoa Fjarðaáls um mánaðamótin september/október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alcoa. Magnús Þór Ásmundsson tilkynnti í sumar að hann hyggðist láta af störfum sem forstjóri fyrirtækisins og tók Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri álframleiðslu, tímabundið við sem forstjóri.

„Frá árinu 2017 er Tor Arne búinn að starfa sem forstjóri Lista í Noregi og þar á undan stýrði hann starfsemi steypuskála í Evrópu og Ástralíu. Í því starfi var hann m.a. yfirmaður framkvæmdastjóra steypuskála hjá Fjarðaáli. Tor Arne hefur starfað hjá Alcoa frá árinu 2011 og unnið fjölbreytt störf fyrir fyrirtækið. Meðal annars hefur hann verið framkvæmdastjóri steypuskála hjá Lista, svo og framkvæmdastjóri innkaupa þar. Hann mun yfirgefa stöðu sína sem forstjóri Lista þegar hann gengur til liðs við Fjarðaál,“ segir í tilkynningunni frá Alcoa.