Torfi Kristjánsson var á dögunum ráðinn deildarstjóri lánadeildar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og hefur hann þegar hafið störf hjá sjóðnum.
Torfi er viðskiptafræðingur að mennt og er í MBA námi í Háskóla Íslands. Torfi vann um árabil hjá Landsbankanum, þar á meðal sem útibússtjóri.
Torfi er giftur Rúnu Malmquist og eiga þau þrjá drengi.