Innkalla þarf 321 bíl af gerðinni Toyota Avensis og 22 Lexus bíla á Íslandi vegna galla í eldsneytisleiðslum.

Þetta kemur fram á Vísi.is . Kemur fram að haft verður samband við eigendur og bílarnir lagfærðir þeim að kostnaðarlausu.

Líkt og greint var frá í dag þarf Toyota að innkalla 1,7 milljónir bifreiða á heimsvísu vegna galla, flestar í Japan. Hlutabréfaverð í Toyota féllu um 2% við fréttirnar en þurft hefur að kalla inn nærri 16 milljónir bifreiða frá því síðla árs 2009.