Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur hækkað hagnarspá sína á árinu vegna veikara jens og hagræðingaraðgerða. Býst fyrirtækið við hækkun sem nemur 12,4%. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að það búist nú við hagnaði upp á 17,5 milljarða bandaríkjadollara á ársgrundvelli. BBC News greinir frá.
Seðlabanki Japans breytti peningastefnu sinni í síðustu viku sem gerði það að verkum að gengi japanska jensins hefur ekki verið lægra gagnvart bandaríkjadollara síðan í janúar 2008. Hefur það komið sér vel fyrir útflutningsfyrirtæki landsins, en til dæmis hækkuðu hlutabréf Toyota um 4,83% þegar seðlabankinn tilkynnti um ákvörðun sína.
Fyrirtækið, sem er stærsti bílaframleiðandi Japans, hækkaði jafnframt söluspána fyrir Norður-Ameríku sem er einn af lykilmörkuðum þess.