Toyota á Íslandi náði þeim áfanga í júlílok að selja fjögur þúsundasta bílinn á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins. Magnús Kristinsson, eigandi þess, var viðstaddur þegar Sigurður Stefánsson ráðgjafi afhenti Önnu J. Kristinsdóttur bifreiðina, fimm dyra Yaris 1,3 með MM skiptingu. Af þessu tilefni var henni færður blómvöndur, auk ferðar fyrir tvo til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.

"Árið 2005, sem var metár í sölu á nýjum bílum hjá Toyota, fór salan í fyrsta sinn yfir 4000 bíla og var því marki þá náð í október. Það er þess vegna greinilegt að sala á árinu 2006 hefur verið einstaklega góð og sérstaklega hafa viðtökur við nýjum gerðum sem kynntar hafa verið á árinu verið góðar," segir í tilkynningunni.