Japanski bílaframleiðandinn Toyota þarf að innkalla tæplega 2,8 milljónir bíla undir merkjum fyrirtækisins um heim allan. Þetta er önnur innköllun fyrirtækisins á jafn mörgum mánuðum. Fyrirtækið innkallaði rúmlega sjö milljónir bíla fyrir mánuði. Annað eins magn hefur aldrei áður þurft að innkalla í sögu bílsins. Reyndar þurfti Ford að innkalla átta milljónir bíla vegna galla í þeim árið 1996.
Innköllunin nú tengist galla í stýrisbúnaði og kælikerfi Toyota-bíla undir merkjum Avensis, Corolla og Prius. Um 1,5 milljón bílanna er í Japan, 670 þúsund í Bandaríkjunum en tæplega hálf milljón bíla í Evrópu. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvort kalla þurfi inn bíla hér á landi vegna gallans.
Hvað galla í stýrisbúnaðinum snertir þá getur hann valdið því að átak þurfi til að snúa stýrinu þegar bílum er ekið hægt. Eins og erlendis fjölmiðlar lýsa málinu þá hafa ekki orðið nein slys á fólki vegna þessa.