Bílarisinn Toyota kallar nú inn einar 6,5 milljónir bifreiða um heim allan eftir að öryggisvandamál kom upp í gluggaopnurum. Var þá hætta á að eldur kviknaði.

Þetta er í fjórða sinn sem bílframleiðandinn japanski hefur þurft að kalla inn bifreiðar vegna sama gluggavanda. Vandinn á uppruna sinn í birgjum Toyota, japansks fyrirtækis að nafni Tokai Rika Co.

Tokai Rika mun færa til bóka sinna tap sem hljóðar upp á rúma 15 milljarða króna vegna þessarar innköllunar, sagði fyrirtækið í dag.

Bilunin orsakast í því að hluti tækjabúnaðarins sem opnar og lokar gluggum bifreiðanna var ekki nægilega olíuborinn, sem gæti skapað núning og ofhitnað, og mögulega kveikt út frá sér.