Toys R Us braut gegn lögum með því að merkja verð vöru sem tilboðsverð þegar varan var ekki á tilboði. Þetta segir á vef Neytendastofu, sem hefur lagt 500 þúsund króna stjórnvaldssekt á 19. Janúar ehf., rekstaraðila verslunarinnar Toys R Us, fyrir brot á útsölureglum.

Neytendastofa fór fram á skýringar fyrirtækisins á því af hverju fyrra verð leikfanga sem merkt voru sem tilboðsvörur kæmi ekki fram samhliða útsöluverðinu. Í ákvörðun Neytendastofu segir að þegar vara sé auglýst á tilboði verði að tilkynna fyrra verð hennar samhliða tilboðsverði hennar. Í svörum frá fyrirtækinu Toys R Us hafi komið fram að umrædd leikföng hefðu fyrir mistök verið merkt sem tilboðsvörur þegar um venjulegt verð leikfanganna hafi verið að ræða.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér .