TPG-hópurinn, sem er að íhuga yfirtökutilboð í spænska flugfélagið Iberia, mun hefja áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu á mánudaginn, að því er Dow Jones-fréttastofan hefur eftir heimildarmönnum. TPG lagði fram bráðabirgðatilboð upp á 3,41 milljarð evra í Iberia í mars síðastliðnum.