Einkafjárfestingarsjóðurinn TPG hyggst gera yfirtökutilboð í Jagúar og Land Rover einingu bandaríska bílaframleiðandans Ford, að því er Dow Jones-fréttastofan hefur eftir heimildarmanni sem vel þekkir til mála. Það er gert ráð fyrir því að Ford muni formlega gera grein fyrir söluferlinu á fimmtudaginn. Á meðal annarra hugsanlegra kaupenda að Jagúar og Land Rover er Cerberus Capital Management, sem nýverið keypti 81% hlut í Daimler Chrysler Group.