Vinnumálastofnun greiðir út tæpa 2 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar í dag til um 15 þúsund einstaklinga.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en greitt er fyrir tímabilið 20. febrúar - 19. mars 2009.

Fjöldi þeirra sem nú eru skráðir atvinnulausir er 17.782 samkvæmt vef vinnumálastofnunar en atvinnuleysi hefur aukist nokkuð hratt síðustu mánuði þó aðeins hafi hægt á fjöldanum síðustu vikur.

Atvinnuleysi mældist 8,2% að meðaltali í febrúar en gróflega má áætla að atvinnuleysi sé nú um 11%.

Þó er rétt að hafa í huga að það kann ekki að vera meðaltal yfir marsmánuð þar sem fjöldi atvinnulausra hefur aukist jafn og þétt allan mánuðinn. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi í mars mælist á milli 10,5 – 10,8% að meðaltali samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins.

Atvinnuleysi mælist sem fyrr, þ.e. miðað við síðustu mánuði, mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem 11.920 eru skráðir atvinnulausir eða 67% allra þeirra sem skráðir eru atvinnulausir. Hlutafallið hefur þó minnkað lítillega en í febrúar voru um tæplega 69% þeirra sem skráðir voru atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu.

Þar á eftir eru 1.879 einstaklingar skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum eða 10,6% þeirra sem skráðir eru atvinnulausir.

Minnsta atvinnuleysið mælist á Vestfjörðum þar sem 134 eru skráðir atvinnulausir eða 0,7% þeirra sem skráðir eru atvinnulausir á landinu.