Í septembermánuði bárust Vinnumálastofnun fjórar tilkynningar um hópuppsagnir. Allt voru það tilkynningar frá fyrirtækjum í byggingariðnaði, starfandi á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofunar.

Þar kemur fram að alls var tilkynnt um uppsagnir á 113 starfsmönnum, en heildarfjöldi starfsmanna þessara fyrirtækja er um 430 og er því um fjórðungi starfsmanna sagt upp að jafnaði.

Uppsagnirnar koma til framkvæmda á fimm mánaða tímabili, en fyrstu uppsagnirnar koma til framkvæmda í lok októbermánaðar en þær síðustu í lok febrúar 2009. Flestar uppsagnirnar koma þó til framkvæmda fyrir árslok 2008.

Hópuppsagnir á árinu 2008

Á vef stofnunarinnar kemur fram að alls hefur verið sagt upp um 1.460 manns á árinu 2008 með hópuppsögnum.

Í hverjum mánuði hafa borist allt að fjórar tilkynningar, engin í mars en mest í maí og september.

Þá segir að fjöldi þeirra sem sagt er upp er hins vegar mjög mismunandi, í flestum tilvikum eru fyrirtæki að segja upp fáum tugum starfsmanna en í einstaka tilvikum hafa uppsagnir einstakra fyrirtækja verið nálægt 100 eða jafnvel nokkur hundruð.

„Sveiflurnar eru því miklar milli mánaða en á heildina litið fjölgar þeim sem sagt er upp með hópuppsögnum eftir því sem líður á árið,“ segir á vef stofnunarinnar.

Flestum starfmönnum var sagt upp í ágúst, en einnig var fjöldi einstaklinga mikill í maí og júní.

Nú síðustu mánuði hefur mest verið um hópuppsagnir í byggingariðnaði og er yfir 40% uppsagna á árinu 2008 í byggingariðnaði. Um 20% er í flugrekstri, milli 15 og 20% í ýmis konar þjónustustarfsemi, svipað hlutfall í verslunarstarfsemi og 6% í sjávarútvegi.

Nálægt 60% uppsagnanna ná til fólks sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu, tæp 20% á Suðurnesjum og rúm 20% annars staðar á landinu