Alls gengu 1.484 fleiri úr þjóðkirkjunni í fyrra en þeir sem skráðu sig í hana á árinu.

Árið áður voru brottskráðir úr þjóðkirkjunni 1.212 fleiri en nýskráðir og 851 árið 2005.

Árið 2007 voru gerðar 2.876 breytingar á trúfélagaskráningu í þjóðskrá. Það svarar til þess að 0,9% landsmanna hafi skipt um trúfélag á árinu.

Flestar breytingar á trúfélagi má rekja til úrsagna úr þjóðkirkjunni, eða 1.685, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Flestar trúfélagsbreytingar í áratug

Trúfélagabreytingum hefur heldur farið fjölgandi undanfarin þrjú ár og hafa þær ekki verið hlutfallslega fleiri síðan 1996 en þá skiptu nærri 1% landsmanna um trúfélag.

Árið 2007 fjölgaði þeim sem skráðu sig utan trúfélaga um 685 manns. Mest fjölgun í trúfélagi varð í Kaþólsku kirkjunni, en í hana skráðu sig 525 fleiri en sögðu sig úr henni. Næst mest var fjölgunin í Fríkirkjunni í Reykjavík, eða um 445 manns. Í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fjölgaði meðlimum um 185 manns og fjölgun varð um 106 manns í Ásatrúarfélaginu. Meðlimum í Búddistafélagi Íslands fjölgaði um 96 á árinu.