Nýskráningar ökutækja á fyrstu 298 dögum ársins (01,01,'08 - 19,09,'08) er samtals 16.525 en á sama tímabili í fyrra voru 22.878 ökutæki nýskráð hér á landi.

Þetta er 27,8% fækkun nýskráninga milli ára.

Þetta kemur fram á vef Umferðarstofu en stofnunin hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 19. september 2008. Hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja ekki bara bifreiða.

Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 63.969 en þau voru 76.592 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári.

Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur 16,5% milli ára.

Þess má geta að fyrstu 74 daga ársins 2008 hafði orðið mikil aukning á nýskráningum eða 46,8% borið saman við sama tímabil árið á undan. Það er því ljóst að eftir þann tíma hefur orðið mikill viðsnúningur, segir á vef Umferðarstofu.