Á árinu 2008 var tap af rekstri samstæðu Landsvirkjunar sem nam tæplega 40 milljörðum króna eða 344,5 milljónum Bandaríkjadala en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var 246 milljónir Bandaríkjadala.  Handbært fé frá rekstri nam 184,4 milljónum Bandaríkjadala.

Í árslok námu heildareignir samstæðunnar 4.619,2 milljónum Bandaríkjadala og eigið fé nam 1.376,8 milljónum Bandaríkjadala. Eiginfjárhlutfall er 29,8% í árslok 2008.

Rekstrartekjur aukast um 83 milljónir Bandaríkjadala sem er að verulegu leyti vegna aukinnar orkusölu með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar.  Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 100,5 milljónum Bandaríkjadala á árinu en var 105,8 milljónir Bandaríkjadala árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 660,6 milljónum Bandaríkjadala sem skýrist aðallega af lækkun á virði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði og gengistapi. Gengistapið og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins.  Meðalnafnvextir langtímalána voru um 4,51% á árinu 2008 en þeir voru um 4,69% árið áður.