Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2004 var 302 milljarðar og er það aukning um tæpa 20 milljarða miðað við árið 2003 samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Í 13 atvinnugreinum af 17 jókst söluverðmæti, mest í framleiðslu á lækninga- og rannsóknatækjum (48,9%) en samdráttur var mestur í fata- og leðuriðnaði (-14,8%).

Hlutdeild atvinnugreina í söluverðmæti framleiðsluvara er stöðug á tímabilinu 2003?2004 en hlutdeild matvæla- og drykkjarvöruiðnaðar er langmest. Árið 2004 nam hún 55,1% af heildarverðmæti, þar af 37,4% vegna fiskvinnslu segir í frétt Hagstofu Íslands.