Engar hópuppsagnir voru tilkynntar Vinnumálastofnun í febrúar að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.

Því eru upplýsingar um hve margar hópuppsagnir koma til framkvæmda næstu mánuði óbreyttar, þ.e. um 480 koma til framkvæmda nú í mars, um 230 í apríl og um 120 í maí.

Vinnumálastofnun barst 10 tilkynningar um hópuppsagnir í janúar þar sem sagt var upp samtals 167 einstaklingum.

Nú eru tæplega 16.700 manns skráðir atvinnulausir á vef Vinnumálastofnunar. Þar af eru rétt rúmlega 11 þúsund á höfuðborgarsvæðinu, tæplega 1.800 á Suðurnesjum og um 1.600 manns á Norðurlandi eystra.