Almennu hlutafjárútboði Mosaic Fashions hf. erlokið. Alls óskuðu 2.391 fjárfestar eftir að kaupa hluti fyrir samtals 10.7 milljarða króna að söluvirði. Í boði voru hins vegar nýir hlutir að söluvirði 1.200 milljónir króna. Eftirspurn almennra fjárfesta eftir hlutum í Mosaic Fashions hf. var 8,7 föld. Verður fjárfestum því úthlutað minna hlutafé en þeir skráðu sig fyrir.

Áformað er að Mosaic Fashions hf. verði skráð í Kauphöll Íslands eigi síðar en þann 21. júní næstkomandi.