Fjölmiðla- og afþreyingarfélagið 365 hf. skilaði árssölu að upphæð 11.096 milljónum króna og EBITDA hagnaður ársins nam 1.552 milljónum króna. Tap ársins nam 6.943 milljónum króna en sé horft á áframhaldandi starfsemi félagsins þá nam tap ársins 1.227 milljónum króna segir í frétt félagsins.

Í því samhengi er þó rétt að geta að tap af rekstri eininga sem hafa verið aflagðar svo sem NFS, DV og tímaritaútgáfu fellur undir reglulega starfsemi á árinu 2006. Á fjórða ársfjórðungi nam tap félagsins 2.246 milljónum króna eftir skatta, en hagnaður að upphæð 255 milljónir króna var af áframhaldandi starfsemi. Sala á tímabilinu nam 3.595 milljónum króna og EBITDA hagnaður nam 1.362 milljónum króna.

Tímabilið október til desember 2006 er fyrsta tímabilið sem 365 hf. birtir afkomu eftir skiptingu Dagsbrúnar hf í 365 hf og Teymi hf. Starfssemi sú sem ekki er hluti af núverandi rekstri félagsins er sett fram sem aflögð starfssemi í ársreikningnum. Megin rekstrareiningar félagsins eru 365 miðlar ehf. Sena ehf. Sagafilm ehf. og D3 ehf.

Í tilkynningu félagsins kemur fram að stjórnendur meta rekstrarhorfur 365 hf nokkuð góðar á árinu 2007. Þær aðgerðir sem gripið var til seinni parts ársins 2006 hjá 365 miðlum ehf., meðal annars lokun NFS, sala á DV og tímaritum eru til þess fallnar að ná fram hagræðingu í rekstri og efla kjarnastarfsemi félagsins segir í fréttinni. Þessar ráðstafanir leggja grunn að viðsnúningi í rekstri á árinu 2007. Ágætur gangur hefur verið í öðrum einingum innan 365 hf og engar sveiflur gert vart við sig viðlíkar þeim sem orðið hafa í rekstri fjölmiðla.

Stjórnendur leggja mikla áherslu á að lækka skuldir félagsins sem nú nema rúmlega 8 milljörðum króna. Sala á eignarhlutum í hlutdeildarfélögum er liður í því en bókfært verð þeirra er um 5 milljarðar kr.

?Síðasta ár hefur verið tími mikilla umbreytinga hjá 365 hf og forvera þess Dagsbrún hf. Vinna við þessar breytingar hefur verið tímafrek og kostnaðarsöm, auk þess sem 365 hf hefur þurft að taka á sig miklar afskriftir vegna endurmats á virði þeirra fjárfestinga sem ráðist var í, en eru utan framtíðarreksturs 365 hf. Ljóst er að rekstrarniðurstaða félagsins er óásættanleg," segir Ari Edwald forstjóri.

Að því er varðar núverandi rekstur 365 hf er það fyrst og fremst innan 365 miðla sem þurft hefur að taka til hendinni til að koma rekstrinum í gott horf. Á fjórða ársfjórðungi seldu 365 miðlar útgáfuréttinn að DV inn í nýtt útgáfufélag og seldu eða lögðu niður 5 tímarit. Fréttablaðið og fylgirit þess, m.a. Markaðurinn, eru nú einu prentmiðlarnir sem 365 miðlar gefa út. Á þriðja ársfjórðungi var útsendingum fréttastofunnar NFS hætt en Fréttastofa Stöðvar 2 og vefmiðillinn Vísir efld þess í stað. Þessar breytingar eru í samræmi við þá stefnumörkun 365 miðla að efla kjarnastarsemi á sviði dagblaðaútgáfu, sjónvarps, útvarps og vefmiðlunar og stefna að forystuhlutverki á þeim sviðum miðlunar þar sem 365 starfar og að allar rekstrareiningar nema tímabundin þróunarverkefni, skili viðunandi arðsemi.?