Hagnaður varð af rekstri Kaupfélags Eyfirðinga svf. á síðasta ári og nam hann 1.958 millj. kr. að teknu tilliti til reiknaðra skatta. Veltufé frá rekstri nam 96 millj. kr. Heildareignir félagsins nema 4.813 millj. kr. og skuldir 775 millj. kr. Bókfært eigið fé er því 4.038 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 84%.

Í samræmi við yfirfærslusamning KEA og Kaldbaks hf. frá árinu 2002 og samruna Kaldbaks og Burðaráss á árinu 2004 hefur Burðarás hf. tekið á sig greiðsluskyldu á langtímaskuldum félagsins að eftirstöðvum 165 millj. kr. í lok tímabilsins, þar af eru 80 millj. kr. færðar sem næsta árs afborganir meðal skammtímaskulda. Í reikningum félagsins er því myndaður mótreikningur við umræddar langtímaskuldir á meðal langtíma- og skammtímakrafna, sem sýnir þá kröfu sem félagið á á hendur Burðarási hf.

Á árinu seldi félagið eignarhlut sinni í fjárfestingarfélaginu Kaldbaki hf. fyrir 3.744 millj. kr. og í kjölfar þeirra viðskipta eignaðist félagið 10% eignarhlut í Samherja hf. og er sá eignarhlutur metinn á markaðsverði í árslok.

Kaupfélagið á 170 millj. kr. hlut í Norðlenska matborðinu ehf. eða 42,5% og er hluturinn bókfærður á nafnverði. Innra virði hlutabréfa Kaupfélagsins í Norðlenska matborðinu var 92 millj. kr. lægra en bókfært verð þeirra í lok tímabilsins.

Félagið hefur gefið út skuldabréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands og er þessi fréttatilkynning gefin út í samræmi við reglur um upplýsingaskyldu útgefenda skráðra skuldabréfa.

Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur ekki lengur með höndum eiginlegan atvinnurekstur heldur starfar sem byggðafestufélag. Tilgangur félagsins er að vinna að hagsmunum félagsmanna og efla búsetu á félagssvæðinu, sem nær yfir Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur. Þeim tilgangi sinnir félagið einkum með að:

1. Hafa með höndum umsjón og eignarhald á hlutafé KEA í hlutafélögum og öðrum félögum og taka þátt í stjórnun þeirra.

2. Ávaxta eignir KEA og ráðstafa hæfilegum arði af þeim til félagsmanna sinna og til eflingar atvinnu og mannlífs á félagssvæðinu.

3. Hafa frumkvæði að því að stofna til fjárfestingar og nýsköpunar í atvinnurekstri á félagssvæðinu og kalla eftir samstarfi við opinbera aðila, við fyrirtæki, fjárfesta og einstaklinga í því skyni að efla atvinnulíf.

4. Leita samninga um viðskiptakjör fyrir félagsmenn.

Á árinu veitti Kaupfélagið margvíslega styrki til mennta- og atvinnumála, menningar,- líknar- og æskulýðsstarfsemi að fjárhæð samtals um 36 millj. kr. og eru þeir gjaldfærðir í uppgjörinu.

Félagsmenn í Kaupfélagi Eyfirðinga svf. eru 7.834 talsins og eiga allir jafnan hlut.