Mikill áhugi er á stafi flugliða hjá Iceland Express og sóttu tæplega eitt þúsund manns um störfin fyrir næsta sumar. Þau voru auglýst fyrir rúmri viku og rann umsóknarfresturinn út í gær. Sökum mikils áhuga hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrest um viku.

Vegna fjölda umsókna af Norðurlandi munu atvinnuviðtöl fara fram bæði í Reykjavík og á Akureyri.