Sameinað félag Nordic Visitor, Iceland Travel og Terra Nova hefur fengið nafnið Travel Connect. Í fréttatilkynningu er þó tekið fram að fyrirtækin þrjú muni öll áfram starfa sjálfstætt undir nýja móðurfélaginu.

Ásberg Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri Nordic Visitor, mun gegna starfi framkvæmdastjóra Travel Connect. Við breytingarnar tekur Sigfús Steingrímsson við starfi framkvæmdastjóra Nordic Visitor en hann leiddi áður bókunar- og þróunardeild fyrirtækisins.

Nordic Visitor keypti Iceland Tracel af Icelandair en viðskiptunum lauk formlega í lok síðasta árs. Heildarvirði (e. enterprise value) Iceland Tracel í viðskiptunum var metið á 1,4 milljarða króna en þar af eru 350 milljónir háðar frammistöðutengdum mælikvörðum út árið 2023.

Magma Hotel á Kirkubæjarklaustri og rekstur Iceland Tours og Nine Worlds er einnig í eigu nýs sameinaðs félags. Nordic Visitor er auk þess með starfsemi í Svíþjóð og Skotlandi en hátt í 200 manns starfa hjá sameinuðu félagi,“ segir í tilkynningunni.

„Fyrirtækin eru hvert um sig leiðandi á sínu sviði og búa að sterkum viðskiptasamböndum. Með öflugu og reynslumiklu starfsfólki verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna og mynda sterka heild í faglegri þjónustu við erlenda ferðamenn.

Ásberg Jónsson framkvæmdastjóri Travel Connect:

„Fyrirtækin eru að mörgu leyti ólík en með samrunanum viljum við efla faglegan grunn þjónustunnar og styrkja okkar samkeppnishæfni gagnvart sambærilegum erlendum fyrirtækjum. Ég hef trú á því að ferðaþjónusta á Íslandi muni fljótt ná fyrri styrk og að öflugt samstarf fyrirtækjanna styðji við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu.”

Sigfús Steingrímsson framkvæmdastjóri Nordic Visitor:

Þetta er gríðarlega spennandi verkefni. Staða Nordic Visitor er sterk og við sjáum mikil sóknarfæri í stöðunni sem er að skapast eftir faraldur og skert ferðafrelsi. Salan hefur aukist jafnt og þétt síðustu mánuði og ljóst að áfangastaðir okkar í norðanverðri Evrópu höfða sterkt til ferðaþyrstra viðskiptavina. Ég hlakka til að leiða fyrirtækið inn í nýja tíma í ferðaþjónustu ásamt frábæru starfsfólki Nordic Visitor."