Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nú á dögunum nýjan Cleopatra farþegabát til Grikklands. Kaupandi bátsins er Munkaklaustrið í Vatopedi sem staðsett er á Mount Athos skaganum í austurhluta Grikklands. Í tilkynningu frá Trefjum segir að þetta sé annar báturinn sem klaustrið kaupir af Trefjum.  Í fyrra var afgreiddur fiskibátur til sömu aðila.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið „Pantanassa“ (ΠΑΝΤΑΝΑΣΣΑ). Báturinn er 11 brúttótonn. „Pantanassa“ er af gerðinni Cleopatra 33. Báturinn er útbúinn fyrir 12 farþega og 2 í áhöfn.

Vistarverur eru loftkældar og er þar svefnpláss fyrir tvo auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Báturinn mun sinna farþega og vörufutningum fyrir klaustrið til og frá Mount Athos skaganum.

Aðalvélar bátsins eru tvær af gerðinni Yanmar 6LY 380hö hvor um sig tengdar ZF280IV gírum.