Tölvuleikurinn FIFA 13 hefur selst vel eftir að hann kom út. Til að sjá til þess að salan á leiknum færi vel af stað fékk EA, útgefandi leiksins, rapparann Snoop Lion, áður þekktur sem Snoop Dogg, til að kynna leikinn.

Á fyrstu fimm dögunum seldust 4,5 milljónir eintaka og er leikurinn sá mest seldi hingað til á þessu ári. Leikurinn er í fyrsta sæti á sölulistum í 40 löndum. Á fyrsta degi útgáfu leiksins seldist 1 milljón eintaka í Bretlandi eingöngu.