Trúlofunarhringur sem Kris Humphries gaf Kim Kardashian seldist á dögunum á 750 þúsund bandaríkjadali, eða 90 milljónir króna. Humphries greiddi hins vegar 2 milljónir dala, liðlega 240 milljónir króna, fyrir hringinn þegar hann keypti hann fyrir brúðkaupið árið 2011.

Hringurinn var seldur á uppboði hjá Christies uppboðshúsinu í New York í dag. Hringurinn er ákaflega fallegur og prýddur demanti segir á vef tímaritsins Forbes .

Kris Humphries og Kim Kardashian giftu sig árið 2011 og voru gift í sjötíu og tvo daga. Skilnaðurinn varð síðan endanlegur í fyrra. Þau eru bæði þekktust fyrir aðild sína að raunveruleikaþáttunum um Kardashian fjölskylduna.