Kosningastjóri Donald Trump hefur sagt að hann ætli að sleppa framboðs kappræðum sem haldin verður á fimmtudaginn í Des Moines. Þetta verða síðustu kappræður frambjóðenda fyrir fyrstu forkosningar í haldnar veða í Iowa.
Ástæða þess að Trump ætlar ekki að mæta er vegna langvarandi deilna hans við sjónvarpsstöðina Fox, en hún mun sjónvarpa kapræðunum. Trump tilkynnti á þriðjudaginn að hann myndi líklega sleppa kappræðunum ef að Megyn Kelly yrði umræðustjóri, en Trump hefur gagnrýnt Kelly og sagt að hún sé ekki hlutlaus í skoðunum sínum. Kosningastjóri Trump hefur nú staðfest að hann ætli sér ekki að mæta.
Talsmaður Fox segir að þetta sé nánast án fordæma að frambjóðandi mæti ekki til kappræða og að óvíst er hvernig kjósendur í Iowa muni taka þessu nýjasta útspili Trump.