Í nýrri bók eftir athafnamanninn og raunveruleikasjónvarpsstjörnuna Donald Trump segir hann að hrein eign hans sé um sjö milljarðar dala, eða um 830 milljarðar króna.

Er þetta töluvert hærri tala en Forbes tímaritið gerir ráð fyrir að hann eigi. Í september hefti Forbes er hrein eign Trump sögð vera um 2,9 milljarðar dala.

Munurinn skýrist að mestu því því sem Trump kallar virði vörumerkisins. Telur hann að vörumerkið Donald Trump, að meðtöldu hárinu fræga, sé þriggja milljarða dala virði, andvirði um 360 milljarða króna. Forbes álítur hins vegar að nafn Trumps sé aðeins um 200 milljóna dala virði.