Mógúllinn og forsetaframbjóðandinn Donald Trump er nú metinn sem líklegastur til að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana samkvæmt þremur mismunandi spágetraunavefsíðum.

Á Betfair .com er Trump skráður með 34% möguleika á að verða tilnefndur, meðan Ted Cruz er í öðru sæti, tíu prósentustigum á eftir.

PredictWise setur Donald Trump og Marco Rubio í efsta sætið saman, en þeir eru báðir metnir með nákvæmlega 33% líkur á tilnefningunni þar.

Þrátt fyrir að hafa yfirburði í tilnefningunni eru spámarkaðir ekki jafn bjartsýnir á að Trump, eða nokkur annar frambjóðandi Repúblikana, vinni forsetakosninguna sjálfa - PredictWise metur líkur Demókrata á sigri sem 63%.