Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hyggst nú tilkynna um sigurvegara nýrra verðlauna samkvæmt nýrri færslu hans á Twitter. Hyggst forsetinn nú útnefna falskasta og spilltasta fjölmiðil ársins klukkan fimm á mánudaginn kemur. Ekki verður betur skilið á færslu hans en hann hyggist útnefna verðlaunin í nokkrum flokkum og einhverjir þeirra verði óheiðarleiki og slæm fréttamennska.

Færslu forsetans má sjá í heild sinni hér að neðan.