OMXI10 úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq á Íslandi hækkaði um 0,36% í viðskiptum dagsins í Kauphöll Nasdaq á Íslandi og stendur nú í 2.147,68 stigum. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 2,1 milljörðum króna.

Gengi hlutabréfa Regins hækkaði mest í viðskiptum dagsins, um 2,28% í 60 milljóna króna veltu. Næst mest hækkaði gengi Arion banka, um 0,93% í 442 milljóna króna veltu.

Mest lækkaði gengi hlutabréfa Sjóvá, um 2,75% í 125 milljóna króna veltu. Annað tryggingafélag lækkaði næst mest, en gengi VÍS lækkaði um 2,44% í 172 milljóna króna veltu.