FÍB segir að baráttunni við „græðgislegar arðgreiðslur“ sé ekki lokið þrátt fyrir að VÍS og Sjóvá hafi lækkað arðgreiðslutillögur. Félagið segir að félögin hafi ekki dregið til baka áform um að hækka iðgjöld og að þau hafi ekki upplýst um hver framtíð „tugmilljarða króna bótasjóða sem viðskiptavinir þeirra hafa byggt upp með ofteknum iðgjöldum.“

„Bæði félögin viðurkenna að ástæðan fyrir lækkuðum arðgreiðslum sé sú magnaða reiði sem blossaði upp í samfélaginu eftir að FÍB vakti athygli á málinu um síðustu helgi.

Tryggingafélögin viðurkenna hins vegar engin mistök. Þau eru bara að reyna að bjarga orðsporinu og bregðast við miklum flótta viðskiptavina og kröfum um betri viðskiptakjör. “

FÍB segir að stöðva verði áform tryggingarfélaganna um að tæma bótasjóðina. Þau séu núna undir smásjá almennings og fjölmiðla en FÍB vonar að svo verði áfram.

„En ekki síður er mikilvægt að Fjármálaeftirlitið taki sig saman í andlitinu og standi einu sinni með fólkinu í landinu fremur en fjármálafyrirtækjunum. FME er í bestu aðstöðunni af öllum til að hjálpa tryggingafélögunum að losna við fjármunina „sem ekki nýtast“ og skila þeim til réttra eigenda. Í sjálfu sér er það einfalt. Bótasjóðina á auðvitað að nota til að bæta tjón og á móti geta tryggingafélögin lækkað iðgjöld.“