Tryggingafélagið VÍS og Reykjavíkurborg hafa samið til fimm ára tryggingar fyrir margvíslega starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar.

Má þar nefna Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Bílastæðasjóð Reykjavíkur og Skíðasvæði borgarinnar. Hljóðar samningurinn upp á tæpar 198 milljónir króna á ári, sem tekur fyrst og fremst til skyldutrygginga fasteigna og ökutækja.

Fyrir hönd VÍS skrifaði Auður Björk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs undir samninginn en einnig skrifuðu þeir Hrólfur Jónsson skrifstofustjóri eigna og atvinnuþróunar hjá borginni, Jón Viðar Matthíasson fyrir SHS og Kolbrún Jónatansdóttir fyrir Bílastæðasjóð.