Skuldatryggingarálag á fimm ára skuldabréf ríkissjóðs lækkaði um einn punkt í morgun og er það nú orðið 295 punktar ofan á millibankavexti samkvæmt upplýsingum á Keldunni. Miðað við upphaf síðustu viku hefur það þó hækkað um 15 punkta, úr 280. Heilt yfir hefur álagið haldist heldur stöðugt undanfarin og aðeins einstaka sinnum farið örlítið yfir 300 punkta undanfarið ár.