Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði lítillega í dag eða um 0,08% og endaði í 1.342,22 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 2,39%.

Gengi bréfa Sjóvá lækkaði um 2,11%, TM um 1,74% og VÍS um 0,75%.

Gengi bréfa Eimskipa hækkaði hins vegar um 1,35%, Icelandair Group um 0,72% og Össurar um 0,24%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 768,1 milljónum króna.