PLAIO, sem þróar hugbúnaðarlausnir fyrir samheitalyfjaiðnaðinn, tilkynnti í dag 300 milljón króna fjármögnun frá Frumtaki.  Fjármagnið mun nýtast félaginu við áframhaldandi þróun hugbúnaðar og uppbyggingu sölustarfs á alþjóðlegum mörkuðum. PLAIO hefur þegar haslað sér völl á samheitalyfjamarkaðinum og eru Coripharma og MS Pharma á meðal viðskiptavina þess.

PLAIO hefur þróað skýjalausn sem er sérsniðin að þörfum samheitalyfjaframleiðenda og gerir þeim kleift að skipuleggja framleiðslu og hráefnisinnkaup á skilvirkan hátt með myndrænni framsetningu. Kerfið leggur grunn að sjálfvirknivæðingu framleiðsluskipulagningar á grunni bestunaraðferða og gervigreindar. Viðskiptavinir félagsins hafa náð fram umtalsverðu rekstrarhagræði með notkun lausnarinnar sem gefur aukna yfirsýn, bætir ákvarðanatöku og dregur úr sóun.

Nýjasta viðbót kerfisins sem nú er í smíðum nýtir gervigreind til að aðstoða notendur við skipulagningu sem dregur úr handavinnu og leiðir til markvissari áætlana. Í tilkynningunni segir að markmið fyrirtækisins séu að verða leiðandi á heimsvísu á þessu sviði.

Félagið var stofnað af Jóhanni Guðbjargarsyni, tölvunarfræðingi, sem fékk til liðs við sig meðstofnendurna Árna Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóra vörustjórnunarsviðs hjá alþjóðlega samheitalyfjafélaginu MS Pharma, Eyjólf Inga Ásgeirsson, aðstoðarprófessor við Háskólann í Reykjavík og Hlyn Stefánsson, dósent við Háskólann í Reykjavík.

Jóhann Guðbjargarson, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIO:

„Lausnirnar okkar gera viðskiptavinum kleift að skipuleggja sig á einfaldan og markvissan hátt. Þá er auðvelt að gera breytingar á fyrri áætlunum sem er mjög mikilvægt í síkviku rekstrarumhverfi nútímans. Við höfum þróað hugbúnaðinn undanfarin 2 ár í nánu samstarfi við viðskiptavini og finnum fyrir miklum áhuga á lausnunum okkar á erlendum mörkuðum.“

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtaks:

„Félagið er í lykilstöðu til að svara kalli markaðarins fyrir skilvirkar stafrænar lausnir og verða leiðandi á sínu sviði. Við sjáum mikil tækifæri í áframhaldandi þróun og markaðssetningu á lausnum félagsins og hlökkum til vegferðarinnar framundan með PLAIO teyminu.“