Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Justikal mun stórefla þróun og byggja upp alþjóðlegt sölu- og markaðsteymi til að sækja á erlenda markaði. Stækkunin kemur í kjölfar 400 milljóna króna fjárfestingar frá Eyri Vexti. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hugbúnaðarlausn Justikal gerir lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla. Með lausninni geta málsaðilar fylgst með framvindu sinna mála í réttarkerfinu og fengið sjálfvirkar tilkynningar þegar nýir atburðir verða í málum sem tengjast þeim. Auk þessa er fjöldi annarra eiginleika í lausninni sem geta aukið afkastagetu aðila í réttarkerfinu og gert þeim kleift að vinna eftir þægilegri og nútímalegri vinnuaðferðum en áður hefur þekkst, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Lausnin hefur verið í þróun síðastliðin 4 ár og hefur Dómstólasýslan samþykkt að lögmenn og aðilar megi nota lausnina til að senda öllum héraðsdómstólum á Íslandi gögn rafrænt. Hún er aðgengileg á justikal.com og er nýr valkostur sem stendur aðilum til boða til að senda gögn rafrænt til dómstólanna.

Justikal hefur hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði sem hefur gert félaginu kleift að ná þeim stað sem lausnin er á í dag. Á næstu mánuðum mun félagið ráða fólk í hugbúnaðarþróun, sölu- og markaðsstarf. Undirbúningur fyrir þennan tímapunkt hefur átt sér góðan aðdraganda og gera má ráð fyrir að fyrirtækið muni vaxa hratt alþjóðlega á stuttum tíma.

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar:

,,Eyrir Vöxtur fjárfestir í fyrirtækjum sem eru tilbúin til að taka hröð vaxtarskref á alþjóðamörkuðum. Justikal fellur vel að áherslum sjóðsins og við hlökkum til þess að starfa með þessu frábæra teymi og erum spennt fyrir að taka þátt í að koma lausn Justikal inn á alþjóðamarkað.“

Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og forstjóri Justikal:

„Framundan er mjög spennandi tími. Í lögmannsstörfum mínum kynntist ég vel umhverfi og áskorunum sem lögmenn þurfa að takast á við vegna pappírsendinga og tímafresta. Í dag er mikið magn gagna sem eru aðeins til á rafrænu formi og í sumum tilfellum er ekki hægt að prenta út skjölin ef þau innihalda t.d. rafrænar undirskriftir. Með innleiðingu eIDAS reglugarðarinnar í íslensk lög eru allar nauðsynlegar forsendur komnar til þess að geta ýtt af stað miklum framförum á umhverfi lögmanna og starfsfólki dómstóla.

Við gætum ekki verið ánægðari með fjárfesti þar sem Eyrir er ESG sjóður og leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og að stuðla að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Nú þegar deilum við mörgum sterkum gildum þar sem markmið Justikal er einmitt að gera málsmeðferð fyrir dómstólum hraðari, gagnsærri og öruggari. Stofnendur Justikal telja að þeir geti lækkað málskostnað aðila og í kjölfarið gert dómstóla aðgengilegri fyrir tekjulægri aðila. Sparnaður fyrir samfélagið með notkun lausnar Justikal getur verið gríðarlegur eða u.þ.b. 3,3 milljarðar á ári fyrir íslenskt samfélag.“