Tryggvi E Mathiesen hefur verið ráðinn tæknistjóri Borgarplasts. Tryggvi starfaði áður sem framleiðslustjóri hjá KeyNatura og SagaNatura. Greint er frá ráðningu Tryggva í fréttatilkynningu.

Tryggvi er með M.Sc. í Matvælafræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á hátækniverkfræði við SDU í Sönderborg, Danmörku.

„Tæknistjóri mun stýra framleiðslu í verksmiðjum Borgarplasts ásamt því að leiða framleiðsluþróun fyrirtækisins með áherslu á vöruþróun, nýsköpun, endurvinnslu og ábyrga nýtingu,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að Borgarplast hafi verið stofnað í Borgarnesi árið 1971 og fagni því 50 ára afmæli á árinu. Er fyrirtækinu svo lýst á eftirfarandi hátt:

„Borgarplast framleiðir fiskiker, frauðkassa fyrir ferskan fisk, húseinangrun og ýmsar fráveitulausnir á borð við olíuskiljur, brunna og rotþrær. Í Mosfellsbæ rekur Borgarplast hverfisteypu fyrir fráveitulausnir og fiskiker. Borgarplast er stærsti söluaðili einangraðra fiskikerja á Íslandi ásamt því að selja fiskiker til allra heimsálfa. Í Reykjanesbæ starfrækir fyrirtækið frauðverksmiðju.

Borgarplast leggur áherslu á að nota endurvinnanleg hráefni og hefur verið leiðandi framleiðandi á vörum sem ætlaðar eru til hreinsunar á frárennsli frá fyrirtækjum og heimilum. Félagið hefur þannig alla sína tíð lagt sitt á vogaskálarnar í umhverfisvernd og þjónustu við fyrirtæki sem þurfa að uppfylla lög og reglugerðir um hreinlæti og umhverfisvernd.“