Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur, hefur verið ráðinn tímabundið til forsætisráðuneytisins til að sinna ráðgjöf í efnahagsmálum, einkum á sviði peninga- og fjármálamarkaðar, að því er fram kemur í frétt frá forsætisráðuneytinu.

Tryggvi hefur að undanförnu verið forstjóri fjármálafyrirtækisins Askar Capital en hefur fengið leyfi frá störfum í sex mánuði.

Áður var hann forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands og prófessor í hagfræði. Hann hefur doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla. Tryggvi hefur störf 1. ágúst nk.