Forsætisráðherra og Tryggvi Þór Herbertsson hafa komist að samkomulagi um að sá síðarnefndi láti af störfum sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
„Af þessu tilefni vill forsætisráðherra færa Tryggva Þór kærar þakkir fyrir velunnin störf á liðnum vikum og mánuðum,“ segir í tilkynningunni.