Á aðalfundi Samorku í dag var Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, kjörinn formaður samtakanna. Tryggvi tekur við af Franz Árnasyni, forstjóra Norðurorku, sem gegnt hefur formennsku í Samorku undanfarin fjögur ár. Þá var Bjarni Bjarnason, sem senn tekur við starfi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, kjörinn nýr í stjórnina. Bjarni tekur sæti Hjörleifs B. Kvaran sem sagði sig úr stjórn Samorku í kjölfar starfsloka hjá Orkuveitu Reykjavíkur í ágúst sl.

Stjórn Samorku verður að öðru leyti óbreytt, en hana skipa því næsta árið:

Tryggvi Þór Haraldsson, RARIK, formaður
Bjarni Bjarnason, Orkuveitu Reykjavíkur
Franz Árnason, Norðurorku
Hörður Arnarson, Landsvirkjun
Júlíus Jónsson, HS Orku
Páll Pálsson, Skagafjarðarveitum
Þórður Guðmundsson, Landsneti