Tryggvi Tryggvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna.

Tryggvi starfaði lengst af hjá Landsbankanum og dótturfélögum hans.

Hann hefur meðal annars starfað þar sem forstöðumaður markaðsviðskipta, aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðasviðs, framkvæmdastjóri Landsbankans í Lúxemborg og framkvæmdastjóri Landsvaka.

Síðar var Tryggvi framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Saga Fjárfestingarbanka.