TT3 ehf. hefur keypt allt hlutafé í raftækjaheildversluninni SRX ehf. og Ormsson ehf. Í fréttatilkynningu þar sem greint er frá kaupunum segir að SRX og Ormsson verði sameinuð. Það muni gefa mikla möguleika á kostnaðarhagræðingu og aukinni hagkvæmni vegna stærðar og breiddar. Kaupin hafa verið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu .

Í tilkynningunni segir að SRX hafi á undanförnum árum verið ein af stærstu raftækjaheildverslunum landsins. Helstu vöruflokkar fyrirtækisins séu farsímar, rafmagnshlaupahjól, heyrnatól, spjaldtölvur og aðrar vinsælar vörur á markaði.

Meginstarfsemi Ormsson sé innflutningur og sala á heimilistækjum, sjónvörpum og hljómtækjum auk innflutnings og sölu á eldhúsinnréttingum. Ormsson sé umboðsaðili fyrir sum af þekktustu vörumerki í heimi. Þar á meðal eru vörumerki á borð við Samsung, AEG, Bang & Olufsen, Nintendo, Sharp og HTH.

Kjartan Örn stýrir sameinuðu félagi

„Tilgangur og markmið SRX með kaupunum á Ormsson er að styrkja innviði félagsins með auknu aðgengi að mannauð, þekkingu, lagerhúsnæði og breiðara vöruvali. Þannig mun sameinað félag leitast við að hámarka nýtingu framleiðsluþátta og bjóða betri þjónustu við viðskiptavini með aukinni stærðarhagkvæmni og meira vöruúrvali,“ segir í fréttatilkynningu.

Þar segir jafnframt að áætluð ársvelta hins sameinaða félags verði um sex milljarðar króna með um sextíu starfsmenn. Eigendur fyrirtækisins eru Kjartan Örn Sigurðsson, Ingvi Týr Tómasson og Guðmundur Pálmason.

Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri SRX, mun stýra sameinuðu félagi. Hann er þaulreyndur á sviði alþjóðaviðskipta, bæði í heildverslun og á sviði smásölu. Kjartan Örn kveðst sjá mikil tækifæri með kaupunum. „Ormsson er sterkt vörumerki og í fyrirtækinu er mikið af reynslumiklu starfsfólki með mikla þekkingu. Við höfum trú á vörumerkinu Ormsson til framtíðar. Sameining fyrirtækjanna skilar hagkvæmari rekstri, auknu vöruframboði og bættu aðgengi að vörum á markaði sem mun stuðla að aukinni þjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags.“

Andrés B. Sigurðsson fráfarandi forstjóri og aðaleigandi Ormsson er þakklátur þeim sem hafa verið tengdir fyrirtækinu í áratugi en segist jafnframt sjá ný tækifæri til vaxtar með nýjum eigendum. „Eigendur Ormsson ehf., sem hafa verið tengdir fyrirtækinu í áratugi vilja þakka samstarf við fyrirtæki og einstaklinga, sem hafa verið traustur viðskiptavinahópur í nær hundrað ára sögu þess.  Nýir eigendur eru reyndir í viðskiptum hér á landi og erlendis. Með sameiningu fyrirtækja koma ný tækifæri til vaxtar og þróunar til lengri tíma. Óskum við, fyrrum eigendur, hinum nýju farsældar og megi tryggir viðskiptamenn njóta góðra viðskipta og samstarfs til framtíðar.“