Íslenska hönnunarfyrirtækið Tulipop setti í dag í loftið YouTube rás sem inniheldur stuttar teiknimyndir byggðar á hinum litríka Tulipop ævintýraheimi og persónunum sem þar búa.

Teiknimyndirnar eru framleiddar í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Wildbrain, sem er leiðandi í framleiðslu afþreyingarefnis fyrir vefmiðla, en Wildbrain sér einnig um að stýra YouTube rásinni á heimsvísu. RÚV hefur nú þegar tryggt sér sýningarétt á þáttaröðinni og mun láta þýða þættina og talsetja á íslensku í samstarfi við Tulipop og sýna í sjónvarpi síðar á árinu.

Handrit þáttanna skrifar handritshöfundurinn Tobi Wilson í samstarfi við Signýju Kolbeinsdóttur, yfirhönnuð Tulipop og skapara Tulipop heimsins, en Tobi hefur skapað sér nafn í heimi teiknimynda, sem einn helsti handritshöfundur The Amazing World of Gumball, sem sýnt er á Cartoon Network. Tónlistin í þáttunum er frumsamin af Herdísi Stefánsdóttur og James Newberry, og Ólafur Darri Ólafsson leikari ljær einni aðalpersónu þáttanna, Fred, rödd sína.

Fyrstu þrjár teiknimyndirnar eru nú þegar aðgengilegar á YouTube rásinni, en fleiri þættir munu bætast við á næstu vikum. Þættirnir gerast á eyjunni Tulipop, sem er lifandi og síbreytileg ævintýraeyja með engin bein tengsl við raunveruleikann þó að hún sé að miklu leyti innblásin af Íslandi. Í þáttunum er fylgst með kómískum ævintýrum Tulipopparanna, sem eru yndislegir en meingallaðir – svona eins og fólk er flest.

Framkvæmdastjóri Tulipop, Helga Árnadóttir segir: „Þetta er stór dagur fyrir okkur í Tulipop og við erum alsæl með að geta nú leyft Tulipop aðdáendum að kynnast skringilegum persónum ævintýraheimsins betur í gegnum teiknimyndir sem við vonum að muni gleðja krakka á öllum aldri.”

Tulipop er margverðlaunað hönnunarvörumerki með höfuðstöðvar í Reykjavík og skrifstofu í New York, en fyrirtækið opnaði einnig nýverið sína fyrstu verslun á Skólavörðustíg 43 í Reykjavík. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 af Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönnuði og teiknara, og Helgu Árnadóttur, tölvunarfræðingi og MBA, en saman létu þær draum sinn rætast um að búa til einstakt vörumerki sem höfðar bæði til þeirra eigin barna og um leið barnsins í öðrum. Tulipop vinnur með alþjóðlegum framleiðendum sem hafa keypt réttinn að framleiðslu á vörum með Tulipop heiminum og persónunum, m.a. virta bandaríska leikfangaframleiðandanum Toynami.