Félag í eigu bandaríska fjölmiðlarisans Turner Broadcasting System hefur lagt fram yfirtökutilboð í allt hlutafé Latabæjar (LazyTown Entertainment). Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins býður Turner um 20% hærra verð en félagið var metið á við fjárhagslega endurskipulagningu sem lauk um síðasta sumar.

Virði hlutafjár er samkvæmt tilboðinu metið á 12 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 1,4 milljarða króna. Skuldir félagsins nema um 2,5 milljónum dala og er heildarvirði Latabæjar metið á 14,6-15,1 milljón dala, um 1,7 milljarða króna miðað við núverandi gengi.

Stjórn Latabæjar hefur leitað að erlendum fjárfestum frá því að endurskipulagningu lauk, með það að markmiði að gera Latabæ kleift að vaxa. Við endurskipulagningu eignuðust kröfuhafar 60% hlutafjár í félaginu. Magnús Scheving, stofnandi og forstjóri félagsins, og eiginkona hans Ragnheiður Melsteð halda um 40% hlut.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð.