Tíu launahæstu tónlistarmenn heims þénuðu samanlagt 1,4 milljarða Bandaríkjadala á síðasta ári. Einn tónlistarmaður þénaði þó næstum því helminginn af þeirri fjárhæð, en sá er kallaður Dr. Dre. Hann aflaði um 620 milljónir dala á síðasta ári.
Þetta má sjá á nýjum lista fjármálatímaritsins Forbes yfir tuttugu launahæstu tónlistarmenn ársins 2014. Athygli vekur að gamli refurinn Paul McCartney situr í áttunda sæti listans með tekjur upp á 71 milljón dala. Hér er listinn í heild:
Tuttugu launahæstu tónlistarmenn heims 2014
1. Dr. Dre - 620 milljónir dala
2. Beyonce - 115 milljónir dala
3. The Eagles - 100 milljónir dala
4. Bon Jovi - 82 milljónir dala
5. Bruce Springsteen - 81 milljón dala
6. Justin Bieber - 80 milljónir dala
7. One Direction - 75 milljónir dala
8. Paul McCartney - 71 milljón dala
9. Calvin Harris - 66 milljónir dala
10. Toby Keith - 65 milljónir dala
11. Taylor Swift - 64 milljónir dala
12. Jay Z - 60 milljónir dala
13. Diddy - 60 milljónir dala
14. Bruno Mars - 60 milljónir dala
15. Justin Timberlake - 57 milljónir dala
16. Pink - 52 milljónir dala
17. Michael Bublé - 51 milljón dala
18. Rihanna - 48 milljónir dala
19. Rolling Stones - 47 milljónir dala
20. Roger Waters - 46 milljónir dala