Tvær rannsóknir sem snúa að einelti fengu í gær styrk úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Schevings Thorsteinsonar við Háskóla Íslands, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.

Styrkhafar eru Vanda Sigurgeirsdóttir, doktorsnemi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, og Anna Margrét Magnúsdóttir, meistaranemi í uppeldis- og menntunarsálfræði við Árósaháskóla.