„Það hefur allt gengið að óskum og veiðar með tveimur trollum í stað eins hafa virkað fullkomlega. Tvö troll voru alfarið notuð í síðustu veiðiferð og það sem af er þessari og árangurinn er alltaf betur að koma í ljós.“

Þetta segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK, í viðtali við heimasíðu Brims en þar segir jafnframt að reynsla er óðum að komast á veiðar skipsins með tveimur trollum samtímis í stað eins. Til þess að gera mönnum mögulegt að beita þessari veiðitækni þurfti að setja þriðju togvinduna í skipið auk tveggja nýrra grandaravinda. Um það verk sáu starfsmenn Stálsmiðjunnar / Framtaks en allur vindubúnaður í skipinu er frá Naust Marine.

Að sögn Eiríks eru notuð tvö 360 möska Hemmertroll frá Hampiðjunni á Akureyri við veiðarnar í stað eins 470 möskva Hemmertrolls. Notaðir eru gömlu Thybörön toghlerarnir sem samtals vega 7,4 tonn. Milli trollanna tveggja er rúmlega fimm tonna snúningslóð en það tengist skipinu með togvír frá nýju tovindunni og innri gröndurum.

„Við notum svokallaðan rússa sem gilsunum er húkkað í. Það eru engar stroffur á trollpokunum og þrýstingur á fisknum í pokunum er því í lágmarki. Svo hefur það auðvitað sitt að segja að t.d. tíu tonna hol dreifist á tvo trollpoka í stað eins. Allt hjálpar þetta til að bæta meðferð aflans,” segir Eiríkur.

Akurey er nú á Látragrunni og er Magnús Kristjánsson skipstjóri í veiðiferðinni.