Aðeins tveir starfsmenn verða eftir í Sögu fjárfestingarbanka í kjölfar breytinga sem kynntar voru í dag. Tilkynnt var um kaup MP banka á fyrirtækjaráðgjöf Sögu í dag. Sex starfsmenn Sögu fjárfestingarbanka hefja störf hjá MP banka, samhliða kaupum MP á fyrirtækjasviðinu. Þeir sem ekki fara til starfa hjá MP banka fengu uppsagnarbréf og munu starfa út uppsagnarfrest, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Starfsmenn Sögu voru sextán talsins í júní síðastliðnum.
Með þessum hætti er dregið úr starfsemi Sögu á meðan endurskipulagning stendur yfir. Einn viðmælenda Viðskiptablaðsins innan bankans sagði að það sé gert meðan beðið er úrlausna ýmissa mála er snúa að bankanum. Heimildir Viðskiptablaðsins herma enn frekar að vinna starfsmannanna tveggja muni vera við eignasafn Sögu og að viðhalda tekjuskattseign innan bankans. Ekki stendur til að skila inn fjárfestingarbankaleyfinu, að því er Viðskiptablaðið kemst næst.
Nánar er fjallað um hvaða starfsmenn munu flytjast til MP banka og hverjir verða eftir í Sögu fjárfestingarbanka í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun, fimmtudag. Meðal annars efnis í blaði morgundagsins er:
- Fá einingar í Icelandic með yfirtöku skulda
- Milljarða lækkun á heildareignum Eignasafns Seðlabanka Íslands
- Kröfuhafar Byrs fá 9,5 milljörðrum minna
- Efnahagsáætlun AGS lokið
- Afleitur ágúst afstaðinn
- Velta IKEA eykst og hagnaður sömuleiðis
- Hallinn helmingi meiri en að var stefnt
- Holyoake í stjórn ISI
- Steve Jobs kveður
- Viðtal við Geir Þorsteinsson, formann KSÍ