Tveir starfsmenn markaðsviðskipta hjá Straumi, þeir Þorbjörn Atli Sveinss og Hannes Árdal, hafa sagt upp störfum hjá bankanum. Þorbjörn Atli staðfestir þetta í samtali við VB.is, en segir að ekkert ósætti innan bankans hafi ráðið þeirri ákvörðun.

Hann segir að það muni koma í ljós á næstu vikum hvað taki við hjá honum. „Það er ekki tímabært að greina frá því á þessum tímapunkti,“ segir hann.

Haraldur I. Þórðarson, sem áður var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Straumi, og Steingrímur Arnar Finnsson, sem einnig starfaði á sama sviði, sögðu upp í byrjun þessa mánaðar. Fjórir af sex starfsmönnum sviðsins hafa því sagt upp í sama mánuði.