Björgvin Ingi Ólafsson og Frosti Ólafsson hafa verið ráðnir til McKinsey sem ráðgjafar. Björgvin er að ljúka MBA námi við Kellogg School of Management en Björgvin hefur starfað meðal annars hjá Auði Capital, Straumi og Landsbankanum. Frosti leggur nú stund á MBA nám í London Business School en hann hefur m.a. verið aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.